Íslenskt viðburða- og verslunarkerfi

Allt fyrirsölu og viðburði.

Ordo sameinar miðasölu, skráningu, greiðslur og vefverslun í einu kerfi.

  • Miðar, skráning og innskönnun
    Heildarlausn fyrir viðburði, frá Þorrablótum upp í árshátíðir með þúsundum gesta.
  • Greiðslur og pantanir
    Kassakerfi á síma, pöntun á borðið og innbyggðar greiðslulausnir.
  • Sérsniðin vefverslun
    Vefverslun og miðasala undir þínu vörumerki og á þínu eigin léni.

Traustir samstarfsaðilar

Apótekarinn
Benchmark Genetics
Borgarbyggð
Orkuveitan
Controlant
Hagar
Distica
Apótekarinn
Benchmark Genetics
Borgarbyggð
Orkuveitan
Controlant
Hagar
Distica

Vörurnar okkar

Sex vörur. Eitt vistkerfi.

Ordo er sett saman úr sex vörum sem deila sömu gögnum og sömu upplifun. Notaðu eina, nokkrar eða allar saman, þær tala allar við hver aðra.

Ordo í tölum

Treyst af fyrirtækjum um allt land

Ordo er notað af veitingastöðum, viðburðahöldurum og fyrirtækjum á Íslandi á hverjum degi.

120+
Viðburðir
37.000+
Gestir
38+
Viðskiptavinir
11.000+
Pantanir
Greiðslur renna beint til þín Íslensk þjónusta og stuðningur
GreiðslulausnirApple PayGoogle PayAurTeya

Sögur frá viðskiptavinum

Stærstu fyrirtækin reiða sig á Ordo

Mörg af stærstu fyrirtækjum landsins nota Ordo fyrir sína flóknustu viðburði, frá árshátíðum með þúsundum gesta til ráðstefna, Þorrablóta og annarra móttaka.

  • Hannað fyrir flókið skipulag og margar viðskiptaeiningar
  • Skalast frá hverfishátíðum upp í árshátíðir með þúsundum gesta
  • Þjónusta sem svarar, manneskja sem þekkir kerfið
  • Greiðslur renna beint til þín, Ordo tekur aldrei við peningunum þínum
Hagar
“Við hjá Högum notuðum Ordo fyrir árshátíð Haga 2026 en undir þeim hatti eru 10 félög — Hagkaup, Bónus, Aðföng, Bananar, Eldum Rétt, Ferskar Kjötvörur, Olís, Stórkaup, Lemon og Zara — og mörg okkar félög með margar deildir. Sbr. Bónus með 34 verslanir. Fyrir svo stóran og blandaðan hóp er mikilvægt að skráning og eftirlit sé einfalt og skilvirkt. Það var svo sannarlega raunin hjá Ordo! Þetta er í annað sinn sem Hagar halda svo stóra árshátíð og í fyrsta sinn með Ordo með okkur — allt skipulag og utanumhald var mjög einfalt og þægilegt. Við erum líklega flókin: erum með aldurstakmark, 10 félög og margar deildir, dregið af launum fyrir maka — allt þetta var leikur einn fyrir Ordo fólk og öll bakvinnsla var einföld og skýrslur sem við erum með auðvelda okkur stjórnendum með skipulag fyrir næstu árshátíð. Öll þjónusta og viðmót hjá Ordo fólki var uppá 10 og við mælum heilshugar með Ordo fyrir alla viðburði — hvort sem þeir eru svona risa eins og þessi árshátíð eða minni, þar sem fyrirtækið þarf að hafa öll gögn í bakenda uppá 10!”
H
Helga Jónsdóttir
Skipuleggjandi árshátíðar 2026 · Hagar
Ordo Events
Sjá öll ummæli

Innritun við dyr

QR miðaskönnun við dyr

Hver gestur fær einstakan QR miða. Dyravörðurinn skannar með hvaða síma sem er, ekkert app þarf.

  • Apple Wallet og Google Wallet stuðningur
  • PIN-varinn skanni, aðeins þeir með leyfi geta skannað
  • Endurskönnun flaggað, hver miði virkar aðeins einu sinni
  • Skanninn keyrir í vafranum, engar appauppsetningar
Dyraskanni
Ordo Door
PIN ••••
47
Innritaðir
11
Eftir
JS
Síðasta skanning
Jón Sigurðsson
  1. 1

    Sjálfvirkir QR miðar

    Hver staðfestur gestur fær einstakan QR miða í tölvupósti og í Apple/Google Wallet.

  2. 2

    Skannaðu með hvaða síma sem er

    Skanninn keyrir í vafranum. Engar uppfærslur, engin sérstök tæki, bara veffang og PIN.

  3. 3

    Staðfesting á augnabliki

    Innritunartölur uppfærast í rauntíma og endurskönnun er flaggað strax.

https://þin-verslun.is
ÞÞín Verslun
Nýtt
Sumartilboð, 20% afsláttur
Bolur
5.900 kr.
Árshátíð
12.500 kr.
Gjafabréf
10.000 kr.

Ordo Commerce

Þín eigin vefverslun, knúin af Ordo

Ordo Commerce er vefverslunarvélin sem tengir saman allt Ordo vistkerfið. Fullbúin netverslun og miðasala undir þínu vörumerki og þínu léni, með sömu greiðslulausnum og rauntímagögnum og restin af Ordo.

  • Þitt vörumerki, þín slóð

    Eigið lén, þitt merki, þínir litir, þínar leturgerðir. Gestir sjá ekkert af Ordo nema þú viljir það.

  • Fullbúin vefverslun

    Vöruyfirlit, körfu, afgreiðsla og greiðslur með Aur, Teya og Apple Pay, allt tilbúið út úr kassanum.

  • Viðburðir og miðasala innbyggð

    Seldu miða á viðburði og varning úr sömu vefverslun. Skráning, innskráning og Wallet miðar fylgja með.

  • Tengt Ordo POS, Order og Events

    Vörur, birgðir, gestir og pantanir samstillast sjálfkrafa milli vefverslunar og staðarins.

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Stutt svör við því sem oftast er spurt um. Finnurðu ekki svarið? Sendu okkur línu á ordo@ordo.is eða hringdu í 848-5910.

Hvað getur Ordo gert fyrir þig?

Kynntu þér allar vörurnar okkar.