Ummæli

Sögur frá viðskiptavinum okkar

Ordo er notað af viðburðahöldurum, veitingastöðum og fyrirtækjum sem treysta okkur fyrir sínum gestum.

Hagar
Helga Jónsdóttir
Skipuleggjandi árshátíðar 2026
Ordo Events

Við hjá Högum notuðum Ordo fyrir árshátíð Haga 2026 en undir þeim hatti eru 10 félög (Hagkaup, Bónus, Aðföng, Bananar, Eldum Rétt, Ferskar Kjötvörur, Olís, Stórkaup, Lemon og Zara) og mörg okkar félög með margar deildir. Sbr. Bónus með 34 verslanir.

Fyrir svo stóran og blandaðan hóp er mikilvægt að skráning og eftirlit sé einfalt og skilvirkt. Það var svo sannarlega raunin hjá Ordo!

Þetta er í annað sinn sem Hagar halda svo stóra árshátíð og í fyrsta sinn með Ordo með okkur. Allt skipulag og utanumhald var mjög einfalt og þægilegt. Við erum líklega flókin: erum með aldurstakmark, 10 félög og margar deildir, dregið af launum fyrir maka. Allt þetta var leikur einn fyrir Ordo fólk og öll bakvinnsla var einföld og skýrslur sem við erum með auðvelda okkur stjórnendum með skipulag fyrir næstu árshátíð.

Öll þjónusta og viðmót hjá Ordo fólki var uppá 10 og við mælum heilshugar með Ordo fyrir alla viðburði, hvort sem þeir eru svona risa eins og þessi árshátíð eða minni, þar sem fyrirtækið þarf að hafa öll gögn í bakenda uppá 10!

Öryggismiðstöðin
Sverrir
Framkvæmdastjóri Öryggislausna
Ordo Events

Ordo hefur gjörbreytt því hvernig við höldum utan um árshátíðir og aðra fyrirtækjaviðburði hjá Öryggismiðstöðinni. Skráning, utanumhald og innritun eru öll á einum stað og framkvæmdin verður ótrúlega einföld. Það er eiginlega lúxus að geta treyst því að þetta bara virki.

Orkuveitan
Maren
Verkefnastjóri
Ordo Events

Ordo gerði skráningu og drykkjarmiða á Októberfest hjá okkur svo ótrúlega einfalt í framkvæmd. Engir pappírsmiðar, ekkert vesen og engar langar raðir, gestir voru með allt í símanum og afgreiðslan gekk hratt og örugglega. Lausnin virkaði frábærlega frá upphafi til enda.

Viltu vera næsta sagan?

Hafðu samband og við sýnum þér hvernig Ordo getur unnið fyrir þig.