Ordo Commerce
Ordo Commerce er vefverslunarvélin sem tengir saman allt Ordo vistkerfið, fullbúin netverslun og miðasala undir þínu vörumerki og þínu léni, með sömu greiðslulausnum og rauntíma gögnum og restin af Ordo.
Hvað er Ordo Commerce?
Ordo Commerce gerir þér kleift að reka fullkomna vefverslun og selja miða undir þínu eigin vörumerki, án þess að gestir sjái Ordo nokkurs staðar.
Lykilatriði
Ordo Commerce er ekki bara vefverslun. Hún tengir saman pantanir, miðasölu og rekstrargögn í einu kerfi.
Þitt vörumerki, þínir litir, þínar leturgerðir og þitt lén. Engin tilvísun í Ordo í viðmótinu.
Vöruyfirlit, vörusíður, karfa, afsláttarkóðar og afgreiðsla, allt tilbúið fyrir gesti.
Seldu miða á viðburði og varning í sömu verslun. QR miðar, Apple Wallet og innskönnun fylgja með.
Aur, Teya, Apple Pay og Google Pay, pening fer beint inn á þinn reikning, við snertum hann aldrei.
Tengt Ordo vistkerfinu
Vörur, gestir, pantanir og greiðslur úr Ordo Commerce samstillast sjálfkrafa við Ordo POS, Order og Events.
Gestir versla vörur eða kaupa miða á þinni eigin vefverslun, undir þínu léni.
Pantanir samstillast við Ordo POS og lager, sömu vörur, sami birgðagrunnur, sömu gestir.
Rauntíma sala, miðanotkun og bar-virkni á símanum, eitt mælaborð yfir allar rásir.
Dæmi í notkun
Múlakaffi selur veislumat og smárétti í eigin vefverslun, undir sínu vörumerki og á sínu léni, knúið af Ordo Commerce. Skoðaðu verslunina í beinni.
Hvítmerkjun
Ordo Commerce er hannað fyrir fyrirtæki sem þurfa eigin sjálfstæða vefverslun.
Keyrðu á þinu eigin léni, verslun.þittfyrirtaeki.is eða annað sem þú átt.
Hladdu upp merki og veldu vörumerkjaliti sem birtast á öllum gestaupplifunum.
Apple Wallet og Google Wallet miðar bera þitt merki, ekki Ordo merki.
Notagildi
Sniðin að fyrirtækjum sem vilja eigin sjálfstæða vefverslun og miðasölu, án þess að byggja allt frá grunni.
Verðskrá
Ordo Commerce er pöntunarkerfi fyrir fyrirtæki, ekki bara vefverslun. Veldu pakka sem passar umfangi þínu í dag og stækkaðu þegar salan vex.
Greiðsluvinnslugjöld greiðsluveitna eru ekki innifalin og reiknast sérstaklega. Öll verð eru án virðisaukaskatts.
Algengar spurningar
Stofnaðu fyrirtæki á admin.ordo.is og við hjálpum þér að setja upp Ordo Commerce undir þínu vörumerki.