Um Ordo
Ordo er íslensk lausn frá Hugvinnu ehf. og hefur verið í keyrslu síðan 2019. Ordo hjálpar viðburðahöldurum, veitingahúsum og fyrirtækjum að taka á móti gestum með kerfum sem virka og við veitum fyrsta flokks þjónustu allan tímann.
Sagan okkar
Ordo var stofnað árið 2019 með QR pöntunarkerfi og appi fyrir gesti, sem leyfir fólki að panta mat og drykki beint úr símanum á veitingastöðum og viðburðum. Næstu árin byggðum við upp hugbúnað fyrir hádegisverðarþjónustur og veisluþjónustur, og árið 2023 sjósettum við okkar eigið kassakerfi, Ordo POS.
Árið 2024 fórum við svo fyrir alvöru inn á viðburðamarkaðinn með Ordo Events, heildarlausn fyrir miðasölu, skráningu, sérsniðnar spurningar og innskönnun við dyr. Síðan hafa mörg af stærstu fyrirtækjum landsins notað Ordo fyrir árshátíðir, Þorrablót, ráðstefnur og annan stórviðburði.
Við erum lítið teymi með stóran metnað fyrir góðri þjónustu. Þegar þú hringir í okkur svarar manneskja og við erum með þér frá uppsetningu til síðasta gests.
Lykilatburðir
Stuttur útdráttur af því hvernig Ordo varð til þess sem það er í dag.
Við byrjuðum með QR pöntunarkerfi og appi, gestir gátu pantað mat og drykki beint úr símanum á veitingastöðum.
Við bættum okkar eigin kassakerfi við vöruframboðið, greiðslur og afgreiðsla allt í gegnum síma.
Heildarlausn fyrir miðasölu, skráningu og innskönnun á viðburði. Mörg af stærstu fyrirtækjum landsins reiða sig núna á Ordo fyrir árshátíðir, Þorrablót og aðra stórviðburði.
Heildarlausn fyrir veisluþjónustur, pantanir, valmöguleikar og greiðslur á einum stað.
Við fórum yfir 37.000 gesti sem hafa skráð sig og mætt á viðburði í gegnum Ordo, frá smærri móttökum upp í árshátíðir með þúsundum gesta.
Vefverslunarlausn fyrir fyrirtæki sem vilja selja vörur og þjónustu á netinu með sömu greiðslulausnum og pöntunarkerfi og Ordo POS notar.
Hvers vegna Ordo
Við erum ekki bara hugbúnaðarfyrirtæki, við erum samstarfsaðili sem stendur með þér allan tímann og við sjáum til þess að allt gangi vel.
Hannað á Íslandi fyrir íslenskar þarfir, við styðjum við þorrablót og árshátíðir og drykkjarmiða fyrir íslenskar þarfir
Þegar þú hringir í okkur svarar manneskja sem þekkir kerfið.
Við snertum ekki þína peninga. Þeir fara beint inn á þinn reikning og við sendum þér reikning fyrir okkar þjónustu.
Kerfið hefur séð um þorrablót og árshátíðir með þúsundum gesta, án þess að bregðast á álagstoppum.
Viðskiptavinir
Hagar, Orkuveitan, Controlant og mörg fleiri af stærstu fyrirtækjum landsins hafa notað Ordo fyrir árshátíðir, Þorrablót og aðra stórviðburði.




Vörurnar okkar
Allar vörur Ordo má nota saman eða eina og sér, þær deila sömu gögnum og sömu upplifun.
Við svörum öllum fyrirspurnum, stórum sem smáum.