Skilmálar miðasölu

Þessir skilmálar gilda um kaup á miðum á viðburði í gegnum Ordo. Kaupandi samþykkir þá við kaup og þeir fylgja staðfestingunni í tölvupósti.

Útgáfa 30. október 2026. Kaup lúta þeirri útgáfu skilmálanna sem var í gildi þegar þau fóru fram.

1. Almennt

Þessir skilmálar gilda um kaup á miðum á viðburði sem seldir eru í gegnum miðasölukerfið Ordo, sem er í eigu og rekstri Hugvinnu ehf. Seljandi viðburðarins er skipuleggjandi viðburðarins („seljandi"), sem ber alla ábyrgð á viðburðinum sjálfum, framkvæmd hans, endurgreiðslum og öðrum tengdum málum. Ordo starfar eingöngu sem tæknilegur þjónustuaðili sem sér um sölu og afhendingu miðanna fyrir hönd seljanda.

2. Kaup og greiðsla

Allar greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt Ordo-kerfisins. Greiðsla telst bindandi þegar hún hefur verið samþykkt. Eftir staðfesta greiðslu fær kaupandi tölvupóst með staðfestingu og rafrænum miða sem þarf að framvísa við inngang að viðburði. Seljandi ber ábyrgð á efni viðburðarins, dagskrá og þjónustu sem hann veitir í tengslum við hann.

3. Endurgreiðslur og afbókanir

Keyptir miðar eru almennt ekki endurgreiddir. Ef viðburður er felldur niður eða frestaður, ber seljandi ábyrgð á að upplýsa viðskiptavini og endurgreiða miða ef við á. Ef kaupandi getur ekki mætt af persónulegum ástæðum, ber hann sjálfur ábyrgð á að framselja miðann ef það er heimilt samkvæmt reglum viðburðarins. Hugvinna ehf. (rekstraraðili Ordo) ber enga ábyrgð á breytingum á viðburðum eða endurgreiðslum heldur aðstoðar aðeins við tæknilega úrvinnslu ef þess er óskað af seljanda.

Miði gildir eingöngu á þann viðburð og þá dagsetningu sem hann var keyptur á. Ekki er hægt að færa miða á milli dagsetninga eða sýninga, né skipta honum fyrir miða á annan viðburð, nema seljandi ákveði annað.

4. Aldurstakmark

Viðburðir geta haft aldurstakmörk. Kaupandi ber ábyrgð á að fylgja þeim. Ef einstaklingur uppfyllir ekki aldurstakmark er honum ekki heimill aðgangur og engin endurgreiðsla fæst.

5. Aðgangur og auðkenning

Við komu á viðburð skal framvísa gildum miða, hvort sem hann er rafrænn (í síma) eða prentaður. Skipuleggjandi (skipuleggjandi viðburðarins) áskilur sér rétt til að óska eftir auðkenni til að staðfesta eignarhald á miða.

6. Framferði og öryggi

Skipuleggjandi áskilur sér rétt til að vísa einstaklingum frá viðburði ef þeir sýna ósæmilega hegðun, eru undir annarlegum áhrifum eða brjóta reglur viðburðarins. Engin endurgreiðsla fæst í slíkum tilvikum.

7. Ábyrgð

Skipuleggjandi (skipuleggjandi viðburðarins) ber fulla ábyrgð á viðburðinum og öllu sem þar fer fram. Hugvinna ehf., rekstraraðili Ordo, ber enga ábyrgð á efni, gæðum eða framkvæmd viðburðarins, né mögulegu tjóni sem hlýst af honum. Hugvinna ehf. ber einungis ábyrgð á rekstri Ordo-kerfisins í samræmi við almennar reglur um rafræna þjónustu.

8. Persónuvernd

Persónuupplýsingar sem safnað er við kaup á miðum eru unnar í Ordo-kerfinu fyrir hönd seljanda (skipuleggjandi viðburðarins) og notaðar eingöngu í tengslum við framkvæmd viðburðarins og miðasölu. Meðferð persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi lög og persónuverndarstefnu Hugvinnu ehf.

Ef þú gefur upp upplýsingar um ofnæmi eða mataræði í skráningarferlinu eru þær heilsutengd gögn í skilningi 9. gr. GDPR. Þær eru deildar eingöngu með skipuleggjandi viðburðarins í þeim einum tilgangi að tryggja þér öruggar og viðeigandi matseðisvalkosti á viðburðinum. Með því að skrá slíkar upplýsingar gefur þú sérstaklega samþykki þitt fyrir þessari vinnslu í samræmi við 9. gr. 2. mgr. a GDPR.

9. Breytingar

Skipuleggjandi áskilur sér rétt til að gera breytingar á dagskrá, tímasetningum eða aðstöðu viðburðar án fyrirvara, ef nauðsyn krefur.

10. Rafrænir miðar og notkun Apple Wallet / Google Wallet

Miðar sem keyptir eru í gegnum Ordo eru afhentir rafrænt og hægt er að vista þá í Apple Wallet eða Google Wallet eftir vali kaupanda. Hver rafrænn miði inniheldur einstakt auðkenni (QR-kóða eða strikamerki) sem aðeins má nota einu sinni til inngangs.

Ef sami miði er vistaður á fleiri en eitt tæki eða sendur áfram, gildir fyrsti skannaði miði sem réttur aðgangsmiði. Aðrir miðar verða sjálfkrafa ógildir.

Kaupandi ber ábyrgð á að geyma miðann á öruggan hátt og ekki deila honum með öðrum nema viðkomandi eigi lögmætan rétt til að nota hann.

Mælt er með að halda miðanum bæði í Wallet-forriti og sem varamiða (t.d. í tölvupósti). Apple Wallet og Google Wallet eru þjónustur í eigu Apple Inc. og Google LLC. Notkun þeirra fer eftir skilmálum þeirra fyrirtækja, sem kaupandi samþykkir við notkun Wallet-forritsins.

Ef tæknileg vandamál koma upp við niðurhal eða framvísun Wallet-miða skal hafa samband við þjónustudeild Hugvinnu ehf. eða seljanda viðburðarins áður en viðburður hefst.

11. Lög og varnarþing

Um þessa skilmála gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur skal hann borinn undir Héraðsdóm Reykjavíkur, nema annað sé ákveðið með lögum.

Þar sem stendur „skipuleggjandi viðburðarins“ er átt við þann sem selur miðana á hvern viðburð, og hann er nafngreindur í skilmálunum sem kaupandi samþykkir við kaupin.