Drykkjarmiðar

Drykkjarmiðar á viðburði, stafrænir og skannaðir

Ordo er með innbyggt drykkjarmiðakerfi. Þú velur hvað hver gestur fær marga drykkjarmiða, þeir fylgja aðgöngumiðanum í símann og barþjónninn skannar sama QR kóða og dyravörðurinn.

Fylgja miðakaupumSkannaðir á barnumRauntíma yfirlit
Drykkjarmiðar í Ordo, skannaðir á barnum á viðburði

Hvað eru drykkjarmiðar?

Drykkjarmiði er inneign sem gesturinn fær með miðanum

Drykkjarmiðar, stundum skrifað drykkjamiðar og oft kallaðir barmiðar, eru miðar sem gestur fær með aðgöngumiðanum og notar til að sækja veitingar án þess að borga á staðnum. Á árshátíðum, þorrablótum og tónleikum er algengt að einn til þrír drykkjarmiðar séu innifaldir í miðaverðinu.

Í Ordo eru drykkjarmiðarnir stafrænir. Í stað þess að prenta, telja og afhenda pappírsmiða úthlutar þú inneign á hvern gest. Inneignin liggur á QR kóða gestsins og gengur niður í hvert sinn sem barþjónninn skannar.

Þannig týnir enginn miðunum sínum, enginn ljósritar þá og þú sérð nákvæmlega hvað var innleyst, hvenær og á hvaða bar.

Hvernig það virkar

Frá miðakaupum yfir í drykk á fjórum skrefum

Drykkjarmiðarnir eru hluti af viðburðinum sjálfum, ekki sérkerfi sem þarf að halda utan um.

  1. 1

    Veldu fjölda á gest

    Í viðburðastillingunum setur þú hvað hver gestur fær marga drykkjarmiða. Miðarnir verða til sjálfkrafa um leið og gestur skráir sig eða kaupir miða.

  2. 2

    Gestir fá miðana í símann

    Drykkjarmiðarnir liggja á sama QR kóða og aðgöngumiðinn, í tölvupósti og í Apple Wallet eða Google Wallet. Staðan uppfærist eftir því sem gengur á inneignina.

  3. 3

    Barþjónninn skannar

    Ordo POS les QR kóðann, dregur rétta upphæð af inneigninni og pöntunin fer beint í afgreiðslu. Ein skönnun klárar afgreiðsluna, engin bið eftir posa.

  4. 4

    Fylgstu með í rauntíma

    Mælaborðið sýnir hve margir miðar voru gefnir út, hvað hefur verið innleyst og hvað stendur eftir, á meðan viðburðurinn er í gangi.

Eiginleikar

Drykkjarmiðakerfi sem ræður við raunveruleikann á barnum

Kerfið er byggt utan um viðburði þar sem röðin er löng, starfsfólkið er á hlaupum og gestir spyrja spurninga.

  • Inneign í stað pappírs

    Hver gestur fær inneign sem gengur niður við hverja skönnun. Ekkert að prenta, telja eða gera upp í lok kvölds.

  • Verðþrep á drykki

    Þú stýrir hvað hver vara kostar marga miða. Bjór og gos geta kostað einn miða en dýrari drykkir fleiri.

  • Gildir á þínum sölustöðum

    Miðarnir gilda á þeim börum og sölustöðum sem tilheyra viðburðinum, ekki í annarri sölu hjá fyrirtækinu.

  • Renna út með viðburðinum

    Inneignin hefur gildistíma sem miðast við viðburðinn sjálfan, svo ónotaðir miðar flytjast ekki á næsta viðburð.

  • Hægt að afturkalla skönnun

    Skannað í ógáti eða drykkur felldur? Hver innlausn er skráð sérstaklega og hægt er að afturkalla hana, inneignin fer strax til baka á gestinn.

  • Handvirkir aukamiðar

    Gefðu starfsfólki, listamönnum eða samstarfsaðilum drykkjarmiða handvirkt, líka þeim sem eru ekki á gestalistanum.

Pappír eða stafrænt

Af hverju stafrænir drykkjarmiðar?

Pappírsmiðar virka alveg þangað til eitthvað bregður út af. Þá er enginn að fletta upp neinu.

Pappírsmiðar

  • Prenta, klippa og telja fyrir viðburðinn
  • Gestir týna þeim eða gleyma þeim heima
  • Auðvelt að ljósrita eða endurnýta
  • Uppgjörið byggir á talningu eftir kvöldið
  • Enginn veit stöðuna fyrr en daginn eftir

Drykkjarmiðar í Ordo

  • Verða til sjálfkrafa við skráningu eða miðakaup
  • Liggja í símanum með aðgöngumiðanum
  • Hver skönnun er skráð og gengur á inneignina
  • Tölurnar liggja fyrir um leið og skannað er
  • Rauntímayfirlit á meðan viðburðurinn stendur yfir

Yfirsýn

Það sem viðburðastjórinn sér

Allar tölur um drykkjarmiða eru á einum stað í viðburðinum, bæði á meðan hann stendur yfir og eftir á.

  • Þekjuhlutfall gesta

    Sjáðu hvaða hlutfall gesta er komið með drykkjarmiða og hverjir eru enn án þeirra.

  • Innleyst og eftirstöðvar

    Heildartölur yfir notaða og ónotaða miða uppfærast jafnóðum, svo þú sérð hvenær álagið kemur á barinn.

  • Staðan á hvern gest

    Gestalistinn sýnir hvaða miða hver gestur á og hvað hann hefur þegar notað, gott þegar spurningar koma upp á staðnum.

  • Gögn til uppgjörs

    Innlausnir eru skráðar hver fyrir sig með tíma og sölustað, svo uppgjör við bar og birgja byggir á tölum en ekki minni.

Hentar fyrir

Viðburðir þar sem drykkjarmiðar eru hluti af miðanum

Sama kerfi hvort sem gestirnir eru 80 eða 5.000 og hvort sem barirnir eru einn eða fimm.

Árshátíðir Þorrablót Tónleikar og hátíðir Fyrirtækjaviðburðir Starfsmannahóf Íþróttamót Brúðkaup og móttökur Styrktarviðburðir

Tengt efni

Drykkjarmiðar eru hluti af stærri lausn

Ordo Events
Miðasala, skráning og innritun við dyr með QR kóðum.
Ordo POS
Kassakerfið á barnum sem skannar drykkjarmiðana og afgreiðir pantanir.
Ordo Order
Gestir panta úr símanum í sal og sleppa við röðina á barnum.

Algengar spurningar

Algengar spurningar um drykkjarmiða

Viltu drykkjarmiða á næsta viðburð?

Við setjum upp viðburðinn með þér og stillum drykkjarmiðana eftir því hvernig barinn þinn vinnur.