Ordo Events fyrir árshátíðir

Árshátíðin á einum stað: skráningar, miðar, borð og barinn

Starfsfólkið skráir sig á mínútu, miðinn fer beint í símann og skanninn virkar þó netið í salnum geri það ekki. Greiðslurnar renna beint til ykkar.

Svona virkar það

Þrjú skref, ekkert Excel-skjal

  1. 1

    Þið setjið upp viðburðinn

    Verð, makaverð, deildir, aldurstakmark og spurningar á skráningarforminu. Tekur klukkutíma, ekki viku.

  2. 2

    Starfsfólkið skráir sig

    Velur maka, svarar spurningum um mat og ofnæmi og greiðir með korti, Aur, Apple Pay eða lætur draga af launum.

  3. 3

    Kvöldið sjálft

    Skannað við hurðina með hvaða síma sem er, drykkjamiðar í símanum, gestalistinn og talningin í rauntíma.

Það sem skiptir nefndina máli

Byggt fyrir árshátíðir með hundruðum og þúsundum gesta

Sömu verkfærin keyrðu árshátíð Haga 2026 með tíu félög og margar deildir undir einum hatti.

  • Launafrádráttur

    Starfsfólk velur að láta draga miðaverðið af launum við skráningu. Þið fáið lista fyrir launakerfið, enginn eltist við millifærslur.

  • Makar, deildir og félög

    Maki fylgir starfsmanni, deildin og félagið sjást í skýrslunum. Tíu félög í einum viðburði er ekki vandamál.

  • Borðaplan

    Gestir velja sér borð á plani af salnum og borðanúmerið fylgir miðanum í Apple Wallet og Google Wallet.

  • Skönnun sem virkar án nets

    Dyravörðurinn skannar með símanum sínum, ekkert app. Hver miði virkar einu sinni og skanninn heldur áfram þó netið detti út.

  • Barinn sér um sig sjálfur

    Drykkjamiðar í símanum, tengdir alvöru kassakerfi. Þegar miðarnir klárast heldur salan áfram og gesturinn borgar sjálfur.

  • Veislumaturinn úr sama kerfi

    Ofnæmi og sérþarfir af skráningarforminu fara beint til eldhússins. Ein skráning, engin endurskrift.

Við erum líklega flókin: erum með aldurstakmark, 10 félög og margar deildir, dregið af launum fyrir maka. Allt þetta var leikur einn fyrir Ordo fólk og öll bakvinnsla var einföld. Öll þjónusta og viðmót hjá Ordo fólki var uppá 10 og við mælum heilshugar með Ordo fyrir alla viðburði.
Hagar
Hagar
Skipuleggjandi árshátíðar 2026

Algengar spurningar

Það sem nefndir spyrja um

Bókaðu kynningu

Segðu okkur frá árshátíðinni

Við heyrum í þér innan eins virks dags og sýnum þér kerfið í stuttu símtali eða á fundi. Engin skuldbinding.

Við notum upplýsingarnar eingöngu til að svara þér. Persónuverndarstefna

ordo@ordo.is · 848-5910