Ordo POS
Fyrir veitingastaði og kaffihús. Kassinn keyrir á síma eða iPad með posanum sem þið eigið. Pantanir fara á borð, reikningnum er skipt á milli gesta, gjafakort eru skönnuð í kassanum og öll sala skráist á vöru.
Svona virkar það
Vöruflokkar, verð og myndir eru sett upp í vefviðmótinu. Sömu vörur nýtast svo á viðburðum og í vefverslun ef þið notið hana.
Starfsfólk skráir sig inn með símanúmeri og skannar strikamerkið á posanum. Kassinn keyrir í vafranum, ekkert app að setja upp.
Valdar vörur fara sem ein upphæð í posann. Reiðufé og reikningur eru valmöguleikar, og hver sala skráist með tíma, vöru og greiðslumáta.
Það sem kassinn gerir
Kassinn keyrir á tækjunum sem þið eigið og gerir það sem veitingastaður þarf: borð, skipta reikninga, gjafakort og sundurliðaða sölu.
Kassinn keyrir í vafra á iPad eða síma, ekkert app að setja upp. Kortagreiðslur fara í gegnum posa frá Teya eða Verifone.
Pantanir fara á borð og standa opnar þar til gert er upp. Fleiri pantanir bætast á sama reikning eftir því sem líður á kvöldið.
Reikningnum er skipt í jafna hluti, eftir vörum eða í hvaða upphæðir sem er. Hver greiðir sinn hlut með korti eða reiðufé og kassinn sýnir hvað er eftir.
Gjafakortið er skannað í kassanum og inneignin gengur upp í reikninginn. Ef kortið dugar ekki fyrir öllu er afgangurinn greiddur með öðru.
Sala eftir dögum og klukkutímum, vinsælustu vörurnar, hver vara með fjölda og veltu, og skipting eftir greiðslumáta. Hægt er að sía á tímabil og sölustað.
Í barhamnum velurðu drykkinn einu sinni og skannar svo miða gesta hvern á fætur öðrum. Hver skönnun er bakfæranleg og skráist sem sala.
Hverjum posa er úthlutað á einn sölustað og starfsfólk getur unnið á fleiri en einum. Salan er svo skoðuð saman eða í sitt hvoru lagi.
Algengar spurningar
Bókaðu kynningu
Við sýnum þér kerfið í stuttu símtali eða á fundi og segjum þér hvort það á við hjá ykkur. Engin skuldbinding.
ordo@ordo.is · 848-5910