Ordo Events fyrir þorrablót

Þorrablót án Excel-skjala

Gestir skrá sig og greiða á netinu, velja sér borð á plani af salnum og fá miðann í símann. Skannað við hurðina, líka án nets. Greiðslurnar renna beint til blótsins.

Svona virkar það

Þrjú skref og blótið er komið á netið

  1. 1

    Nefndin setur upp blótið

    Verð, borðaplan af salnum, skráningarform og hvenær salan opnar. Einn fundur með okkur, ekki vika.

  2. 2

    Gestir velja borð og greiða

    Heilt borð fyrir hópinn eða stök sæti. Greitt með korti, Aur eða Apple Pay og miðinn fer beint í símann og í Wallet.

  3. 3

    Kvöldið sjálft

    Dyravörðurinn skannar með sínum síma. Hver miði virkar einu sinni og talningin sést í rauntíma.

Það sem skiptir nefndina máli

Engar millifærslur, enginn listi sem einhver þarf að halda utan um

Þetta er kerfið á bak við þorrablót og árshátíðir um allt land, frá litlum félagsheimilum upp í sali með þúsundum gesta.

  • Borðaplan af salnum

    Gestir sjá plan af salnum, velja sér borð og kaupa annaðhvort heilt borð eða stök sæti við það. Nefndin sér um leið hvaða borð eru seld.

  • Greiðslur beint til blótsins

    Salan rennur beint inn á reikning félagsins, ekki í gegnum okkur. Við sendum reikning fyrir okkar þjónustu eftir á.

  • Miðinn í símann

    Hver gestur fær QR-miða í tölvupósti og í Apple Wallet eða Google Wallet, með borðanúmerinu sínu. Ekkert app.

  • Skönnun sem virkar án nets

    Skanninn keyrir í vafranum á hvaða síma sem er og heldur áfram þó netið í félagsheimilinu detti út. Endurskönnun er flaggað strax.

  • Uppsetningin geymist milli ára

    Næsta nefnd afritar blótið með verðum, borðaplani og skráningarformi. Enginn byrjar á núlli.

  • Biðlisti þegar selst upp

    Þegar hámarksfjölda er náð fara gestir sjálfkrafa á biðlista og fá sæti um leið og losnar.

Við erum líklega flókin: erum með aldurstakmark, 10 félög og margar deildir, dregið af launum fyrir maka. Allt þetta var leikur einn fyrir Ordo fólk og öll bakvinnsla var einföld. Öll þjónusta og viðmót hjá Ordo fólki var uppá 10 og við mælum heilshugar með Ordo fyrir alla viðburði.
Hagar
Hagar
Skipuleggjandi árshátíðar 2026

Algengar spurningar

Það sem nefndir spyrja um

Bókaðu kynningu

Segðu okkur frá blótinu

Við heyrum í þér innan eins virks dags og sýnum þér kerfið í stuttu símtali. Engin skuldbinding.

Við notum upplýsingarnar eingöngu til að svara þér. Persónuverndarstefna

ordo@ordo.is · 848-5910